Einkaleiga


Þú finnur bílinn, við kaupum hann og leigjum þér til allt að þriggja ára. Í lokin kaupir bílaumboðið hann af þér þannig að þú ert laus við alla áhættu af endursölu.

VELDU ÞÉR BÍL
Þú getur valið þér nýjan eða nýlegan bíl hjá öllum helstu bílaumboðum landsins.

HVAÐ ER HÆGT AÐ SEMJA UM?
Í upphafi er samið um ákveðna akstursvegalengd á ári og þá þjónustu sem innifalin er í leigunni.
SP-einkaleiga býðst í íslenskum krónum eða erlendri myntkörfu sem er gengistryggð.

SAMNINGSTÍMI
Lengd samnings um SP-einkaleigu getur verið 12 til 36 mánuðir.
 
TRYGGINGAFÉ
Greiða þarf tryggingafé sem nemur allt að fjórum leigugreiðslum við undirritun samnings. Upphæðin er svo endurgreidd í lok samningstímans.

FYRIRFRAMGREIDD LEIGA
Í upphafi samningstíma er hægt að greiða sérstaka upphæð að eigin vali til að lækka leigugreiðslurnar.

ENGIN ENDURSÖLUÁHÆTTA
Að samningstíma loknum kaupir bifreiðaumboðið bílinn af þér á fyrirfram ákveðnu verði.

HVERJU SVARAR SKATTURINN?
SP-einkaleiga hefur ekki áhrif á skattalega meðferð bílastyrks. Hægt er að færa afskriftir, þjónustu og viðhaldskostnað til gjalda á móti bílastyrk í framtali til skatts.

NOTAÐIR BÍLAR Á EINKALEIGU
Þú getur fengið notaðan bíl á SP-einkaleigu svo lengi sem samanlagður aldur bíls og samningstími er ekki yfir 5 ár.

Þú færð allar nánari upplýsingar um SP-einkaleigu hjá sölumönnum bílaumboðanna eða ráðgjöfum okkar.

Spurningar og svör


Nei, ekki er heimilt að flytja bíla erlendis sem eru með áhvílandi SP-bílaláni. Greiða þarf lánið að fullu upp áður en bíllinn yfirgefur landið.

Það er hægt að greiða upp bílalán hvenær sem er á lánstímanum án þess að greiða neinn aukakostnað.

Já, veðhafar fara fram á að hafa bifreiðina kaskótryggða á lánstímanum til þess að tryggja veðið.

Meginmunurinn er að einkaleiga er kaupleigusamningur með sérstökum skilmálum um lok samnings en rekstrarleiga er hreinn leigusamningur. Þetta gerir það að verkum að bókhaldslegur munur er á þessum leigutegundum. sjá nánar.

Já. Samkvæmt breyttum reglum hjá Umferðastofu geta nú umráðamenn fengið afhent einkanúmer á bíla sem þeir eru með í leigu frá fjármögnunarfyrirtæki líkt og SP-Fjármögnun hf.

Einkaleiga með kauprétti er ný fjármögnunarleið sem gerir þér kleift að leigja bifreið í 12-36 mánuði sem þú skilar aftur til bílaumboðs að þeim tíma loknum. Samningurinn er í raun kaupleigusamningur og því færist hann til eignar hjá leigutaka í skattframtali, en SP-fjármögnun er skráður eigandi á samningstíma.

Sjálfskuldarábyrgð er það þegar einstaklingur eða fyrirtæki ábyrgist greiðslu skuldar annars aðila (aðalskuldara) sem sína eigin. Ábyrgðin er kölluð ?óskipt" eða ?in solidum" sem þýðir að ábyrgðarmaður ábyrgist alla skuldina. Séu þeir fleiri en einn, ábyrgist hver um sig fulla greiðslu

Hlutfallstala kostnaðar endurspeglar allan kostnað við lántökuna og þar sem hún er lægst er árlegur kostnaður lánsins lægstur. Þú getur fengið upplýsingar um hlutfallstöluna hjá sölufulltrúum umboðanna og rágjöfum okkar. Einnig kemur hún fram á greiðsluyfirlitinu. Reiknaðu dæmið miðað við þínar forsendur í reiknivélum á vefnum.

Tryggingarfé (deposit) er baktrygging sem fæst endurgreidd þegar þú ert búin(n) að standa skil á samningnum. Tryggingarfé er til tryggingar á leigugreiðslum og öðrum kostnaði á samningstíma.




Flýtileiðir


Skipta um tungumál


Leit