Fjármögnunarleiga


Fjármögnunarleigusamningar byggja á því að kaupandi tækis semur við SP-Fjármögnun um að greiða það niður með leigugreiðslum í ákveðinn tíma. SP-Fjármögnun er því eigandi tækisins á meðan á leigutíma stendur, en leigutaki hefur fullan umráðarétt yfir því á meðan.
 
Leigutaki tryggir tækið í sínu nafni og greiðir öll eðlileg gjöld af því, eins og t.d. bifreiðagjöld og þungaskatt, ásamt öllum kostnaði vegna viðgerða eða skemmda.

Í lok leigutíma á leigutaki kost á því að kaupa tækið (stundum bindandi) af SP-Fjármögnun á umsömdu verði sem er yfirleitt 3% af upphaflegum leigugrunni. Einnig býðst leigutaka að leigja tækið áfram.

Þegar gerður er fjármögnunarleigusamningur er öll leigugreiðslan gjaldfærð og atvinnutækið því í raun afskrifað (gjaldfært) að fullu á leigutímanum. Þetta hefur þá kosti í för með sér að greiðsla á tekjuskatti frestast ef leigutíminn er styttri en venjubundinn afskriftartími atvinnutækisins.
 

SP-Fjármögnun greiðir kaupverðið með virðisaukaskatti. Leigan reiknast af kaupverði án virðisaukaskatts en virðisaukaskattur leggst á hverja leigugreiðslu. Leigutaki fær virðisaukaskattinn endurgreiddan sé hann með virðisaukaskattskyldan rekstur.

Munurinn á fjármögnunarleigu og kaupleigu felst því einkum í mismunandi bókhaldslegri og skattalegri meðhöndlun, en kjör þeirra eru hin sömu.

HVERJUM HENTAR FJÁRMÖGNUNARLEIGA ?

  • Fjármögnunarleiga hentar þeim best sem hafa skattskyldan rekstur og geta nýtt sér gjaldfærslu á leigugreiðslum til lækkunar á skatti. Innborgun kaupanda er hægt að gjaldfæra strax.
  • Hafi kaupandi ekki skattskyldan rekstur eða tækið er ekki klárlega til atvinnureksturs hentar kaupleiga betur.
  • Fjármögnunarleiga hentar einnig rekstraraðilum sem ekki vilja binda of mikið rekstrarfé. Hún hentar afar vel stórum jafnt sem meðalstórum fjárfestingum.
  • Almennt má segja að því meiri sem hagnaður er, þeim mun betri kostur er fjármögnunarleiga, því hún hefur í för með sér lækkun á bókhaldslegum hagnaði og þar af leiðandi lægri skatta.




Flýtileiðir


Skipta um tungumál


Leit