Bíllinn

 

SP-Fjármögnun býður upp á fjórar léttar leiðir til að fjármagna nýjan eða notaðan bíl;

BÍLALÁN: Fjármögnun fyrir einstaklinga og rekstraraðila sem vilja vera skráðir eigendur að bílnum.

BÍLASAMNINGUR: Kaupleiga þar sem SP á bílinn þangað til samningurinn er uppgreiddur. Jafngreiðslulán fyrir einstaklinga og rekstraraðila.

EINKALEIGA: Kjörin leið fyrir einstaklinga sem vilja leigja bílinn í fyrirframákveðinn tíma og losna þar með við að selja bílinn.

REKSTRARLEIGA: Fjármögnun fyrir rekstraraðila sem vilja ekki binda fé í bifreiðum. Engin endursöluáhætta.

Spurningar og svör


Nei, ekki er heimilt að flytja bíla erlendis sem eru með áhvílandi SP-bílaláni. Greiða þarf lánið að fullu upp áður en bíllinn yfirgefur landið.

Það er hægt að greiða upp bílalán hvenær sem er á lánstímanum án þess að greiða neinn aukakostnað.

Já, veðhafar fara fram á að hafa bifreiðina kaskótryggða á lánstímanum til þess að tryggja veðið.

Meginmunurinn er að einkaleiga er kaupleigusamningur með sérstökum skilmálum um lok samnings en rekstrarleiga er hreinn leigusamningur. Þetta gerir það að verkum að bókhaldslegur munur er á þessum leigutegundum. sjá nánar.

Já. Samkvæmt breyttum reglum hjá Umferðastofu geta nú umráðamenn fengið afhent einkanúmer á bíla sem þeir eru með í leigu frá fjármögnunarfyrirtæki líkt og SP-Fjármögnun hf.

Einkaleiga með kauprétti er ný fjármögnunarleið sem gerir þér kleift að leigja bifreið í 12-36 mánuði sem þú skilar aftur til bílaumboðs að þeim tíma loknum. Samningurinn er í raun kaupleigusamningur og því færist hann til eignar hjá leigutaka í skattframtali, en SP-fjármögnun er skráður eigandi á samningstíma.

Sjálfskuldarábyrgð er það þegar einstaklingur eða fyrirtæki ábyrgist greiðslu skuldar annars aðila (aðalskuldara) sem sína eigin. Ábyrgðin er kölluð ?óskipt" eða ?in solidum" sem þýðir að ábyrgðarmaður ábyrgist alla skuldina. Séu þeir fleiri en einn, ábyrgist hver um sig fulla greiðslu

Tryggingarfé (deposit) er baktrygging sem fæst endurgreidd þegar þú ert búin(n) að standa skil á samningnum. Tryggingarfé er til tryggingar á leigugreiðslum og öðrum kostnaði á samningstíma.




Flýtileiðir


Skipta um tungumál


Leit