Rekstrarleiga


Þarftu nýjan bíl fyrir reksturinn? Þú tekur bílamálin fastari tökum með rekstrarleigu, sparar fyrirhöfn og hagræðir, því hún gerir þér kleift að nýta dýrmætt lausafé - sem ella hefði verið bundið. Þegar rétti bíllinn er fundinn kaupum við hann og leigjum þér í ákveðinn tíma. Að honum loknum er bílnum einfaldlega skilað aftur í umboðið.
 

VELDU ÞÉR BÍL
Þú getur valið þér hvaða nýja bíl sem er hjá öllum helstu bílaumboðum landsins.

HVAÐ ER HÆGT AÐ SEMJA UM?
Þarfir fyrirtækja eru mismunandi. Þess vegna er í upphafi samið um áætlaðan akstur á ári og einnig hvort dekkjaskipti, aukadekk, smur-þjónusta, þjónustuskoðun og allt það sem þú vilt sé innifalið í mánaðarlegum greiðslum.
SP-rekstrarleiga býðst í íslenskum krónum eða erlendri myntkörfu sem er gengistryggð.

SAMNINGSTÍMI
Lengd samnings um SP-rekstrarleigu getur verið 12 til 36 mánuðir.
 
Greiða þarf tryggingafé sem nemur allt að fjórum leigugreiðslum við undirritun samnings. Upphæðin er svo endurgreidd í lok samningstímans.

FYRIRFRAMGREIDD LEIGA
Í upphafi samningstíma er hægt að greiða sérstaka upphæð að eigin vali til að lækka leigugreiðslurnar.

ENGIN ENDURSÖLUÁHÆTTA
Þú þarft ekki að selja bílinn að samningstíma loknum heldur skilar honum einfaldlega til bílaumboðsins.

HVERJU SVARAR SKATTURINN?
Í fjárhags- og skattauppgjöri eru leigugreiðslur ársins gjaldfærðar sem reglubundinn rekstrarkostnaður.

Þú færð allar nánari upplýsingar um SP-rekstrarleigu hjá sölumönnum bílaumboðanna eða ráðgjöfum okkar.

Spurningar og svör


Nei, ekki er heimilt að flytja bíla erlendis sem eru með áhvílandi SP-bílaláni. Greiða þarf lánið að fullu upp áður en bíllinn yfirgefur landið.

Það er hægt að greiða upp bílalán hvenær sem er á lánstímanum án þess að greiða neinn aukakostnað.

Já, veðhafar fara fram á að hafa bifreiðina kaskótryggða á lánstímanum til þess að tryggja veðið.

Meginmunurinn er að einkaleiga er kaupleigusamningur með sérstökum skilmálum um lok samnings en rekstrarleiga er hreinn leigusamningur. Þetta gerir það að verkum að bókhaldslegur munur er á þessum leigutegundum. sjá nánar.

Einkaleiga með kauprétti er ný fjármögnunarleið sem gerir þér kleift að leigja bifreið í 12-36 mánuði sem þú skilar aftur til bílaumboðs að þeim tíma loknum. Samningurinn er í raun kaupleigusamningur og því færist hann til eignar hjá leigutaka í skattframtali, en SP-fjármögnun er skráður eigandi á samningstíma.

Sjálfskuldarábyrgð er það þegar einstaklingur eða fyrirtæki ábyrgist greiðslu skuldar annars aðila (aðalskuldara) sem sína eigin. Ábyrgðin er kölluð ?óskipt" eða ?in solidum" sem þýðir að ábyrgðarmaður ábyrgist alla skuldina. Séu þeir fleiri en einn, ábyrgist hver um sig fulla greiðslu

Hlutfallstala kostnaðar endurspeglar allan kostnað við lántökuna og þar sem hún er lægst er árlegur kostnaður lánsins lægstur. Þú getur fengið upplýsingar um hlutfallstöluna hjá sölufulltrúum umboðanna og rágjöfum okkar. Einnig kemur hún fram á greiðsluyfirlitinu. Reiknaðu dæmið miðað við þínar forsendur í reiknivélum á vefnum.

Tryggingarfé (deposit) er baktrygging sem fæst endurgreidd þegar þú ert búin(n) að standa skil á samningnum. Tryggingarfé er til tryggingar á leigugreiðslum og öðrum kostnaði á samningstíma.




Flýtileiðir


Skipta um tungumál


Leit