Beint í leiðarkerfi vefsins.
SP-Fjármögnun hefur á síðustu tíu árum gengið til liðs við fyrirtæki og einstaklinga í flestum greinum íslensks atvinnulífs. Hjá SP-Fjármögnun starfar fólk með langa reynslu og sérþekkingu í fjármögnun atvinnutækja. Við leggjum metnað okkar í að koma til móts við þarfir viðskiptavina og vinna með þeim að öflugri uppbyggingu og farsæld í atvinnurekstri. Komdu í lið með okkur.
EignaleigaEignaleiga er samheiti yfir fjármögnunarleigu, kaupleigu og rekstrarleigu. Þessar fjármögnunarleiðir eru ólíkar beinum lánum að því leyti að þær byggjast á því að SP-Fjármögnun hf. kaupir þá vél eða tæki sem viðskiptavinurinn óskar og leigir honum til fyrirfram umsamins tíma. Í fjármögnunar- og kaupleigusamningum á leigutakinn síðan rétt á að kaupa búnaðinn eða tækið í lok leigutíma á fyrirfram umsömdu verði.
Þú þarft ekki að kaupa til að endurnýja!Það er mikilvægt að endurnýja vélar og tæki á réttum tíma áður en viðhaldskostnaður fer fram úr hófi. SP-Fjármögnun býður allt að 100% fjármögnun atvinnutækja og er eignarréttur fyrirtækisins í viðkomandi tæki helsta tryggingin fyrir endurgreiðslu. Sé um fulla fjármögnun að ræða þurfa þó í flestum tilvikum frekari tryggingar að koma til samkvæmt nánara samkomulagi viðsemjenda. Meginreglan er að sé tæki fjármagnað að fullu er krafist baktryggingar sem nemur 40% af kaupverði tækisins. Slíkar baktryggingar geta verið með ýmsu móti; fasteignaveð, veð í öðrum vélum og tækjum o.s.frv. Sé um hlutafjármögnun að ræða er meginreglan sú að ef fjármögnunin fer ekki yfir 70% af kaupverði tækisins nægir tækið sjálft sem trygging.
Sveigjanlegar greiðslurSP-Fjármögnun kappkostar að bjóða sveigjanleika í greiðslubyrði leigusamninga svo að sem best jafnvægi ríki á milli tekjustreymis og útgjalda leigutaka. Til hagræðis er þeim viðskiptavinum sem búa við árstíðabundinn rekstur boðið að stilla greiðslubyrði mjög í hóf þegar nýting tækja er slök og tekjur af þeim sökum í lágmarki. Að sjálfsögðu er einnig unnt að greiða af samningum með reglulegum greiðslum, mánaðarlega eða ársfjórðungslega, og er það í raun algengasta samningsformið. Algengur leigutími er tvö til fimm ár.
Hægt er að velja um samninga í íslenskum krónum og erlendri mynt. Ef um erlenda mynt er að ræða er boðið upp á ákveðnar gengiskörfur til að minnka gengisáhættu.
Betri lausafjárstaðaLeigutaki þarf ekki að ganga á fyrirgreiðslu í sínum viðskiptabanka og að sama skapi er lausafjárstaða hans óskert, enda er gert ráð fyrir að tækið skili tekjum til að mæta leigugreiðslum.
Eignaleiga hentar rekstraraðilum sem ekki vilja binda of mikið rekstrarfé í tækjum. Hún hentar afar vel til stórra jafnt sem meðalstórra fjárfestinga, svo sem til leigu á vinnuvélum, atvinnubifreiðum, verksmiðjuvélum og í raun flestum tækjum sem notuð eru í atvinnulífinu.
Skjót afgreiðsla umsóknaTil að tryggja hraða og áreiðanlega afgreiðslu umsókna á sem skemmstum tíma þurfa eftirfarandi gögn að liggja fyrir.• Ársreikningur eða skattskýrsla ef um einstakling er að ræða.• Upplýsingar um viðkomandi atvinnutæki.• Upplýsingar um fjárþörf.
Kostir eignaleigu: