Bílasamningur



SP-bílasamningur er leið sem gerir þér kleift að vera á nýjum eða nýlegum bíl fyrir jafna upphæð (annuitet) á mánuði. SP-bílasamningur býðst í íslenskum krónum eða erlendri myntkörfu sem er gengistryggð. Við erum skráður eigandi á samningstímanum en í lok samningstímans verður bíllinn þín eign.

SKIPT UM BÍL Á SAMNINGSTÍMANUM
Það er auðvelt að skipta um bíl á samnings-tímanum. Við bjóðum fjórar leiðir:
. SAMEININGARSAMNINGUR: Þú getur fengið viðbótarfjármögnun með nýjum samningi með minni tilkostnaði.
. BÍLASKIPTI: Þú flytur samninginn einfaldlega yfir á nýja bílinn
. YFIRTAKA: Kaupandi bílsins tekur við skuldbindingum samningsins.
. UPPGREIÐSLA: Þú getur einnig greitt upp samninginn án nokkurs aukakostnaðar.

HVERNIG ENDAR ÞETTA?
Þegar staðið hefur verið skil á öllum greiðslum verður þú skráður eigandi bílsins.

ENGINN ÞINGLÝSINGARKOSTNAÐUR
Ekki þarf að þinglýsa SP-bílasamningi og þar af leiðandi sparar þú þann kostnað.

Þú færð allar nánari upplýsingar um SP-bílasamning hjá sölumönnum bílaumboðanna eða ráðgjöfum okkar í síma 569 2010.

Spurningar og svör


Nei, ekki er heimilt að flytja bíla erlendis sem eru með áhvílandi SP-bílaláni. Greiða þarf lánið að fullu upp áður en bíllinn yfirgefur landið.

Það er hægt að greiða upp bílalán hvenær sem er á lánstímanum án þess að greiða neinn aukakostnað.

Já, veðhafar fara fram á að hafa bifreiðina kaskótryggða á lánstímanum til þess að tryggja veðið.

Meginmunurinn er að einkaleiga er kaupleigusamningur með sérstökum skilmálum um lok samnings en rekstrarleiga er hreinn leigusamningur. Þetta gerir það að verkum að bókhaldslegur munur er á þessum leigutegundum. sjá nánar.

Já. Samkvæmt breyttum reglum hjá Umferðastofu geta nú umráðamenn fengið afhent einkanúmer á bíla sem þeir eru með í leigu frá fjármögnunarfyrirtæki líkt og SP-Fjármögnun hf.

Einkaleiga með kauprétti er ný fjármögnunarleið sem gerir þér kleift að leigja bifreið í 12-36 mánuði sem þú skilar aftur til bílaumboðs að þeim tíma loknum. Samningurinn er í raun kaupleigusamningur og því færist hann til eignar hjá leigutaka í skattframtali, en SP-fjármögnun er skráður eigandi á samningstíma.

Sjálfskuldarábyrgð er það þegar einstaklingur eða fyrirtæki ábyrgist greiðslu skuldar annars aðila (aðalskuldara) sem sína eigin. Ábyrgðin er kölluð ?óskipt" eða ?in solidum" sem þýðir að ábyrgðarmaður ábyrgist alla skuldina. Séu þeir fleiri en einn, ábyrgist hver um sig fulla greiðslu

Hlutfallstala kostnaðar endurspeglar allan kostnað við lántökuna og þar sem hún er lægst er árlegur kostnaður lánsins lægstur. Þú getur fengið upplýsingar um hlutfallstöluna hjá sölufulltrúum umboðanna og rágjöfum okkar. Einnig kemur hún fram á greiðsluyfirlitinu. Reiknaðu dæmið miðað við þínar forsendur í reiknivélum á vefnum.

Tryggingarfé (deposit) er baktrygging sem fæst endurgreidd þegar þú ert búin(n) að standa skil á samningnum. Tryggingarfé er til tryggingar á leigugreiðslum og öðrum kostnaði á samningstíma.




Flýtileiðir


Skipta um tungumál


Leit